top of page

NÝTT LÍF MEÐ HEILSUSAMLEGUM LÍFSSTÍL

Jóga fyrir líkama og sál

Jóga hefur frábær áhrif á líkamann og getur hjálpað til við ýmis vandamál, bæði andleg og líkamleg. Jóga þýðir sameining eða heild og samanstendur af hugleiðslu, öndunaræfingum og jógastöðum, þar sem lært er að beita líkamanum í takt við öndun. Sameina líkama, hug og tilfinningar. Jógaæfingar krefjast bæði styrk, einbeitingar og liðleika. 

Jóga hefur mjög góð áhrif á líkamann og getur dregið úr ýmsum líkamlegum kvillum, svo sem sársauka í mjóbaki, liðagigt, höfuðverk, lækkað blóðþrýsting og dregið úr svefnleysi.  Einnig eykur það liðleika, vöðvastyrk, verndar líkamann  gegn meiðslum, bætir öndun og orku. Jóga bætir líkamsstöðu þar sem slæm líkamsstaða getur valdið verkjum í baki, hálsi, öðrum vöðvum í líkamanum og liðum. 

Það er vel vitað að styrktaræfingar styrkja beinin og hjálpa til að koma í veg fyrir beinþynningu. Margar jógastöður, líkt og "Downward- og Upward-Facing Dog" hjálpa til að styrkja handleggina sem eru mjög viðkvæmir fyrir beinþynningarbrotum. Einnig kom í ljós í rannsókn sem framkvæmd var í Kaliforníu að jóga eykur þéttleika beina í hryggjaliðunum. Jóga minnkar einnig stresshormónið Kortisól sem getur hjálpað til við að viðhalda kalki í beinum.

Andlegu áhrifin af jóga eru óteljandi. Það hjálpar meðal annars til að fá jákvæðari sýn á lífið og að takast á við streitu, sem getur haft gríðarleg áhrif á líkamann og getur meðal annars valdið háls- eða bakverkjum, svefnleysi, einbeitingarskorti og fleira. Regluleg jógaiðkun veitir skýrleika og ró, eykur líkamsvitund, athygli og einbeitingu. 


 HEIMILDHEIMILD

Home: Inner_about

Hollur og góður vegan matur

Einfaldar uppskriftir sem allir geta prófað

Ég hef verið vegan síðan 2014 og vil deila með ykkur mínum uppáhalds vegan uppskriftum. Það þýðir að þær innihalda engar dýraafurðir, hvorki kjöt, egg, né mjólkurafurðir.  Þær eru mjög hollar og fullkomnar fyrir þig ef þú vilt hollan mat sem er á sama tíma ótrúlega bragðgóður. Ef sætindaþörfin gerir vart við sig þá má einnig finna helling af uppskriftum sem slá á hana, t.d. sykurlausar kókoskúlur þar sem döðlur eru  notaðar í staðinn fyrir sykur. Allar uppskriftirnar eru sykurlausar, innihalda ekkert hveiti, ger eða annan unnin mat. Örfáar uppskriftir innihalda þó náttúrulega sætu líkt og kókospálmasykur þar sem hann hækkar blóðsykurinn ekki eins mikið, en honum er alltaf hægt að sleppa.

Það fylgir því ótrúlegur ávinningur að fylgja hollu og góðu mataræði. Hollt mataræði eða mataræði sem hentar þínum líkama getur bætt líðan, bæði andlega og líkamlega, hjálpar einnig mikið til við þyngdarstjórnun. Það hjálpar til við bakflæði, útþaninn maga eða magaóþægindi. Einnig gott fyrir bjúg, höfuðverki, liðverki, þreytu, streitu, svefntruflanir og ristilvandamál.