top of page

Kröftugt Hatha jóga með góðri djúpslökun

6 vikna Hatha jóganámskeið í Jógasmiðjunni, spönginni. Frá 12. nóvember til 19. desember 2018. Mánudaga og miðvikudaga kl. 20:00-21:15. Kennarar: Anna Lind Fells og Mikael Arnar

Kröftugt Hatha jóga með góðri djúpslökun
Kröftugt Hatha jóga með góðri djúpslökun

Time & Location

:)

Hatha jóganámskeið, Spöngin, 112 Reykjavík, Iceland

Guests

About the event

Um námskeiðið:

Hatha jóganámskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komna þar sem við ræktum huga, líkama og sál með jógastöðum, djúpri öndun og slökun. Gott fyrir þá sem vilja styrkja líkamann, losna við streitu, auka liðleika, einbeitingu, jafnvægi og almenna líðan. Þetta námskeið býður upp á 75 mínútna jógatíma þar sem vel verður farið í jógastöður (Asanas), öndunaræfingar (Pranayama) og slökun í lok tímans. Við gefum okkur oft ekki nægan tíma til að huga að okkur sjálfum, bæði líkama og sál. Leyfum stressinu stundum að ná til okkar eða ýmsum hugsunum. Hér er fullkominn tími til að slaka á, ná stjórn á huganum með öndun og jógastöðum og ná góðri hreyfingu á sama tíma.

Aðeins er tekið við 18 þátttakendum í mesta lagi á hvert námskeið til þess að þeir öðlist sem bestu kennslu og ýtarlegri leiðbeiningar frá kennara.

Verð: 20.000 kr. Þeir sem halda áfram fá 15% afslátt af næsta námskeiði.

Námskeiðinu fylgir aðgangur í alla opna tíma hjá Jógasmiðjunni og Gong slökun.

Um Jóga:

Jóga hefur frábær áhrif á líkamann og getur hjálpað til við ýmis vandamál, bæði andleg og líkamleg. Jóga þýðir sameining eða heild og samanstendur af hugleiðslu, öndunaræfingum og jógastöðum, þar sem lært er að beita líkamanum í takt við öndun. Sameina líkama, hug og tilfinningar. Jógaæfingar krefjast bæði styrk, einbeitingar og liðleika. ​

Jóga hefur mjög góð áhrif á líkamann og getur dregið úr ýmsum líkamlegum kvillum, svo sem sársauka í mjóbaki, liðagigt, höfuðverk, lækkað blóðþrýsting og dregið úr svefnleysi. Einnig eykur það liðleika, vöðvastyrk, verndar líkamann gegn meiðslum, bætir öndun og orku. Jóga bætir líkamsstöðu þar sem slæm líkamsstaða getur valdið verkjum í baki, hálsi, öðrum vöðvum í líkamanum og liðum.

Það er vel vitað að styrktaræfingar styrkja beinin og hjálpa til að koma í veg fyrir beinþynningu. Margar jógastöður, líkt og "Downward- og Upward-Facing Dog" hjálpa til að styrkja handleggina sem eru mjög viðkvæmir fyrir beinþynningarbrotum. Einnig kom í ljós í rannsókn sem framkvæmd var í Kaliforníu að jóga eykur þéttleika beina í hryggjaliðunum. Jóga minnkar einnig stresshormónið Kortisól sem getur hjálpað til við að viðhalda kalki í beinum.

Andlegu áhrifin af jóga eru óteljandi. Það hjálpar meðal annars til að fá jákvæðari sýn á lífið og að takast á við streitu, sem getur haft gríðarleg áhrif á líkamann og getur meðal annars valdið háls- eða bakverkjum, svefnleysi, einbeitingarskorti og fleira. Regluleg jógaiðkun veitir skýrleika og ró, eykur líkamsvitund, athygli og einbeitingu.

Share this event

bottom of page