top of page

JÓGANÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR

4. til 30. mars 2020

MEÐ GÓÐRI DJÚPSLÖKUN

KOMDU LÍKAMANUM Í JAFNVÆGI Á NÁTTÚRULEGAN HÁTT OG ÖÐLASTU ORKURÍKARA LÍF 

4 vikna jóganámskeið í Jógasmiðjunni, Spönginni. Frá 4. mars til 30 mars 2020. Mánudaga og miðvikudaga kl. 12:00-13:00.
Kennarar: Anna Lind Fells og Kidda Svarfdal

OM.png

Staðsetning & tími

Jógasmiðjan í Spönginni. 112 Reykjavík, Grafarvogur.

4. mars til 30 mars 2020

Hádegistímar 2x í viku.

Mánudagar og miðvikudagar frá kl. 12-13

8a8a33bed81dc6fe6a0d22061bb57374.png

Innifalið

8 jógatímar yfir 4 vikna tímabi
Næringaríkar uppskriftir
Heilsubæklingur
black-calligraphic-lotus-blossom-yoga-sy

Vilt þú ...

  • Ná tökum á streitu og stressi

  • Læra grunn jógastöður, öndun og hugleiðslu

  • Leiðbeiningar, stuðning og hvatningu 

  • Minnka bólgur í líkamanum

  • Auka orku og líða vel í eigin skinni

  • Bæta svefngæði

Námskeiðið:

Hatha jóganámskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komna þar sem við ræktum huga, líkama og sál með jógastöðum, djúpri öndun og slökun. Gott fyrir þá sem vilja styrkja líkamann, losna við streitu, auka liðleika, einbeitingu, jafnvægi og almenna líðan. Þetta námskeið býður upp á 60 mínútna jógatíma þar sem vel verður farið í jógastöður (Asanas), öndunaræfingar (Pranayama) og slökun í lok tímans. Við gefum okkur oft ekki nægan tíma til að huga að okkur sjálfum, bæði líkama og sál. Leyfum stressinu stundum að ná til okkar eða ýmsum hugsunum. Hér er fullkominn tími til að slaka á, ná stjórn á huganum með öndun og jógastöðum og ná góðri hreyfingu á sama tíma.

Aðeins er tekið við 18 þátttakendum í mesta lagi á hvert námskeið til þess að þeir öðlist sem bestu kennslu og ýtarlegri leiðbeiningar frá kennara.

 

Verð: 18.000 kr. 
Kennt er tvisvar sinnum í viku í hádeginu frá 12:00-13:00 alla mánudaga og miðvikudaga í 4 vikur. Frá 4. til 30. mars 2020. 
Námskeiðinu fylgir frír aðgangur í alla opna tíma hjá Jógasmiðjunni og Gong slökun.

 

Um Jóga:

Jóga hefur frábær áhrif á líkamann og getur hjálpað til við ýmis vandamál, bæði andleg og líkamleg. Jóga þýðir sameining eða heild og samanstendur af hugleiðslu, öndunaræfingum og jógastöðum, þar sem lært er að beita líkamanum í takt við öndun. Sameina líkama, hug og tilfinningar. Jógaæfingar krefjast bæði styrk, einbeitingar og liðleika.​

 

Jóga hefur mjög góð áhrif á líkamann og getur dregið úr ýmsum líkamlegum kvillum, svo sem sársauka í mjóbaki, liðagigt, höfuðverk, lækkað blóðþrýsting og dregið úr svefnleysi. Einnig eykur það liðleika, vöðvastyrk, verndar líkamann gegn meiðslum, bætir öndun og orku. Jóga bætir líkamsstöðu þar sem slæm líkamsstaða getur valdið verkjum í baki, hálsi, öðrum vöðvum í líkamanum og liðum.

 

Það er vel vitað að styrktaræfingar styrkja beinin og hjálpa til að koma í veg fyrir beinþynningu. Margar jógastöður, líkt og "Downward- og Upward-Facing Dog" hjálpa til að styrkja handleggina sem eru mjög viðkvæmir fyrir beinþynningarbrotum. Einnig kom í ljós í rannsókn sem framkvæmd var í Kaliforníu að jóga eykur þéttleika beina í hryggjaliðunum. Jóga minnkar einnig stresshormónið Kortisól sem getur hjálpað til við að viðhalda kalki í beinum.

 

Andlegu áhrifin af jóga eru óteljandi. Það hjálpar meðal annars til að fá jákvæðari sýn á lífið og að takast á við streitu, sem getur haft gríðarleg áhrif á líkamann og getur meðal annars valdið háls- eða bakverkjum, svefnleysi, einbeitingarskorti og fleira. Regluleg jógaiðkun veitir skýrleika og ró, eykur líkamsvitund, athygli og einbeitingu.

Skráðu þig á námskeiðið hér:

Takk fyrir! Skilaboð send

Anna Lind Fells er heilsumarkþjálfi, næringar- og lífsstílsráðgjafi. Hún er eigandi fyrirtækisins Líkami og Heilsa ehf og hefur haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri heilsu. Einnig er hún menntuð sem jógakennari og einkaþjálfari og er í námi í Functional Medicine eða hagnýddri lækningu. 

Anna Lind kennir hot yoga í Reebok Fitness og býður uppá heilsuráðgjöf í Skeifunni 19. Endilega skoðið heimasíðuna hennar (likamiogheilsa.is) þar sem þar má finna ýmsar hollar uppskriftir, heilsugreinar og þjónustur í boði. 
 

Menntun og námskeið:
2019-2020 Anusara Jógakennaranám hjá Shree Yoga 200 klst
2019 ... - Nám í Applied Functional Medicine hjá SAFM
2019 - 2020 Integrated Movement Science - Exercise Coach hjá Paul Chek Institute    
2019 -2020 Yin Yoga Teacher Training - 30 klst
2018 - 2019 Heilsumarkþjálfi, næringar- og lífsstílsráðgjafi, frá Institute of integrative nutrition í New York
2018 Hatha jógakennari frá Samma Karuna jógakennaraskóla í Tælandi 200 klst
2017 Nám í einkaþjálfun hjá einkaþjálfaraskóla World Class​

Anna Lind Fells

Kidda Svarfdal

Kidda Svarfdal er jógakennari sem útskrifaðist í Anusara jógakennaranámi í janúar 2020. Hún hefur mikinn áhuga á jóga og líkamlegri og andlegri vellíðan. Hún hefur stundað jóga í 15 ár. 
Kidda á 1 dóttur og 2 stjúpbörn, eiginmann og 1 bolabít. Hún elskar ferðalög, heimildarmyndir, snjósleða, útiveru, sveitina og auðvitað jóga.

Einnig lærði hún hárgreiðslu, fór á námskeið í grafískri hönnun og vefsíðugerð.
Kidda Svarfdal er eigandi fréttavefsíðunnar hún.is sem hefur gengið mjög farsældlega.

bottom of page