top of page
Rjómakennd súkkulaðikaka

INNIHALD:

Botn:
1 bolli kasjúhnetur
1/2 bolli möndlur
1/2 bolli pekanhnetur

20 döðlur
1/2 bolli rúsínur
1 tsk hreint vanilluduft
smá sjávarsalt

Súkkulaðikrem:
1 avókaó
1 dós 400 ml kókosmjólk
2 msk agave sýróp
3 msk hreint kakóduft
2 msk kókosolía, brædd
1/2 bolli kasjúhnetur (lagðar í bleyti yfir nótt)
3 msk döðlusýróp eða döðlumauk


AÐFERÐ:
Botn:
Setjið öll innihaldsefnin, nema döðlurnar og rúsínurnar, í matvinnsluvél og blandið vel. Bætið síðan döðlunum og rúsínunum saman við og hrærið vel saman.

Setjið í kökuform og geymið í frysti á meðan súkkulaðikremið er útbúið.

Súkkulaðikrem:

Setjið allt í blandara eða matvinnsluvél og blandið vel. Setjið síðan kremið ofan á botninn á kökunni og geymið í frysti yfir nótt. Takið úr frysti sirka 30 mínútur áður en borið er fram.

Til skreytingar notaði ég heimagert hollt súkkulaðikrem.

Njótið!

Kasjúhnetur:
-Ríkar af magnesíum sem er   mikilvægt fyrir beinin
-Koma í veg fyrir gallsteina
-Auðugar af vítamínum líkt og   ríbóflavín, pantóþensýru, þíamín og   níasín sem koma í veg fyrir blóðleysi
-Stuðla að góðum nætursvefn
-Hjálpa líkama okkar að fullnýta járn   og útrýma sindurefnum (e. free   radicals)
-Vernda gegn UV geislum sólar  og   koma í veg fyrir hrörnun í  augnbotnum
Kókosmjólk:
-Lækkar blóðþrýsting og  kólesteról
-Byggir upp vöðva
-Rík af mikilvægum steinefnum
-Kemur í veg fyrir ofþornun og  niðurgang
-Inniheldur heilbrigðar hitaeiningar   fyrir heilann
-Góð fyrir hjartað
bottom of page