Próteinkökur

Innihald
1 skeið (20g) Plantforce® Synergy Prótein súkkulaði eða vanillu
100g möndlumjöl
2 msk kókosmjöl
1 msk mulin hörfræ
1/2 tsk matarsódi
1 msk kókospálmasykur
1/2 tsk kanill
2 msk kókosolía
2 tsk agave síróp
1 flax egg (1 msk mulin hörfræ + 2 1/2 msk vatn, setja saman í skál og láta þykkna í 5 mín)
60g dökkt súkkulaði (skorið í litla bita)
Smá möndlumjólk
Smá sjávarsalt
Aðferð
Kveikið á ofninum í 180°C.
Útbúið flax egg. Setjið mulin hörfæ og vatn saman í skál, látið bíða í 5 mínútur.
Blandið þurrefninum saman, nema súkkulaðibitunum, í stórri skál.
Bræðið kókosolíuna og agave sírópið undir vatnsbaði.
Setjið blautefnin í stóru skálina, nema möndlumjólkina, með þurrefnunum, bætið við flax eggi og blandið vel.
Setjið smá möndlumjólk hægt og rólega, hrærið á meðan með sleif, þangað til þið fáið kökudeigs áferð.
Bætið súkkulaðibitunum saman við deigið.
Búið til bollur í deiginu, sirka 1 teskeið, og fletjið úr þeim.
Setjið kökurnar í ofninn og bakið í 10-12 mínútur.
Njótið!
Uppskrift eftir @lovedbylauren