top of page

DJÚPHREINSUN HOLISTIC

NÝTT LÍF OG BÆTT LÍÐAN Á AÐEINS 12 VIKUM

Þriggja mánaða hreinsun þar sem við hreinsum hvert einasta líkamskerfi. Þar á meðal undirliggjandi sýkingar og ójafnvægi líkt og Candida sveppasýkingu, sníkjudýr og þess háttar.

Einnig felst hreinsunin í því að hreinsa lifrina því hún er eitt aðal hreinsunarlíffæri líkamans sem losar okkur við eiturefni nútímans, við hreinsum blóðrásakerfið, nýrun, húðina, lungun og endurnýjum frumur líkamans. Ásamt því að endurstilla hugarfarið og auka vellíðan, bæði andlega og líkamlega.

ÓLÍKT ÖLLUM ÖÐRUM HREINSUNUM

Næsti hópur fer af stað 17. mars 2024.

Djúphreinsun Holistic er ekki eins og hver önnur hreinsun. Við erum ekki einungis að djúphreinsa líkamann og líffærin, heldur einnig hugarfarið, neikvæð hugsanamynstur, slæma ávana & andlegt ójafnvægi almennt. Við vinnum í því að endurforrita heilann til þess að bæta lífsgæðin og búa til nýja ávana sem styðja við nýtt og betra líf.

Andleg vellíðan, gott hugarfar, núvitund, gildi, tilgangur og annað slíkt eru ekki síður mikilvægir þættir í að bæta heilsu líkamans. Bæði andlegt og líkamlegt jafnvægi er lykillinn að sannri vellíðan. 

Ath. þessi hreinsun snýst ekki um að svelta líkamann eða borða minna en við þurfum. Langt í frá! Frekar leggjum við áhersla á hámörkun næringarefna – borða fullnægjandi magn af næringarþéttri fæðu til þess að styrkja ónæmiskerfið, minnka bólgur, fjarlægja undirliggjandi sýkingar og vinna á móti slæmum bakteríum í þörmunum.

Tengir þú við eftirfarandi einkenni?

✓ Heilaþoka
✓ Sykurlöngun
✓ Þunglyndi & kvíði
✓ Uppþemba eða magaverkir
✓ Hægðaregða eða niðurgangur
✓ Loftmyndun
✓ Húðvandamál (exem/psoriasis/bólur)
✓ Sýklalyfjanotkun
✓ Notkun á getnaðarvarnarpillunni
✓ Húðvandamál (exem/psoriasis/bólur)

✓ Þreyta / orkuleysi
✓ Svefnleysi
✓ Sveppasýking í kynfærum
✓ Sýking í ennis- og kinnholum
✓ Bakflæði (brjóstsviði / slímmyndun)
✓ Vefjagigt
✓ Vanvirkur skjaldkirtill
✓ Tíðir hausverkir
✓ Umfram líkamsfita sem fer ekki sama hvað ég reyni
✓ Epstein–Barr veira

Candida Ofvöxtur er oft rótin af einkennunum sem við sjáum hér fyrir ofan. Mjög stór hluti einstaklinga í nútímasamfélagi glíma við Candida ofvöxt án þess að gera sér grein fyrir því. Einkennin eru mjög falin og fólk er oft byrjað að vera samdauna því heilsuleysi sem það glímir við og tengir því ekki endilega við Candida ofvöxt. 

HVERNIG VIRKAR DJÚPHREINSUN HOLISTIC?

Netnámskeið

Djúphreinsun Holistic er í formi netnámskeiðis með takmarkaðan fjölda þátttakanda hverju sinni. Nýtt myndband birtist í hverri viku og hægt er að horfa á þau eins oft og þú vilt út hreinsunina.

Ítarleg fræðsla

Myndbönd með ítarlegri fræðslu um hreinsunina og almenna heilsu. Hvernig á að útrýma Candida ofvexti, sníkjudýrum & öðrum heilsufarsvandamálum. Koma meltingunni í jafnvægi, blóðsykringum, efnaskiptunum og mataræðinu.

Ásamt fræðslu um hugarfarið, velgengni, stefnu, gildi, vellíðan og ýmislegt sem eykur árangur í lífinu.

Stuðningur & hvatning

Hópþjálfun í gegnum netið til þess að auka driftkraft og hvatningu. Við bjóðum upp á lokaðan facebook hóp þar sem okkur er frjálst að deila uppskriftum, spurningum, árangri og þess álíka.

Vinnubók & matseðill

Vinnubók fylgir með til þess að styðja þig í gegnum þitt persónulega ferli. Dagbók, verkefni, ítarlegar spurningar & vangaveltur.

Matseðill með fullt af hollum uppskriftum, ásamt ljúffengum eftirréttum, sem hjálpa líkamanum að útrýma slæmum örverum, jafna blóðsykurinn og bæta almenna heilsu.

Swimming in Calm Sea

GÓÐ HEILSA ER BESTA FJÁRFESTINGIN

MARGIR ERU MEÐ CANDIDA OFVÖXT ÁN ÞESS AÐ GERA SÉR GREIN FYRIR ÞVÍ ...

Margir einstaklingar upplifa "falin" einkenni eða eru jafnvel orðnir samdauna þeim heilsufarseinkennum sem þeir upplifa daglega, og telja jafnvel eðlileg. Meðal annars þreytu, svefnleysi, hægðatregðu eða annað form af meltingartruflunum, loftmyndun, bakflæði, hausverk, pirring, kvíða & þunglyndi, vöðvaverki, bólur, mataróþol, streitu, heilaþoku (erfitt með einbeitingu og skýra hugsun) svo dæmi séu nefnd. Sumir upplifa mörg einkenni í einu á meðan aðrir upplifa einungis eitt einkenni sem getur skert lífsgæðin. 

Þú þarft ekki að vera greind/ur með sjúkdóm til þess að hafa ástæðu til þess að taka heilsuna í gegn. Besta er að taka ábyrgð á eigin heilsu strax til þess að fyrirbyggja þá lífsstílstengdu sjúkdóma sem hafa aldrei verið algengari í nútímasamfélagi. Svo sem sykursýki 2, hjarta- & æðasjúkdóm, skjaldkirtilsójafnvægi, gigt og þess háttar.

Heilsan bíður ekki - hún er besta fjárfestingin sem við getum nokkurn tímann gert!

thrush-2021-08-26-15-33-01-utc.jpg

ER ÞESSI HREINSUN FYRIR MIG?
"ég er ekki með sjúkdóm" ... 

Þú þarft ekki að vera með sjúkdómsgreiningu til þess að djúphreinsa líkamann. Margir einstaklingar upplifa "falin" einkenni eða eru jafnvel orðnir samdauna þeim heilsufarseinkennum sem þeir upplifa daglega, og telja jafnvel eðlileg. Meðal annars þreytu, svefnleysi, hægðatregðu eða annað form af meltingartruflunum, loftmyndun, bakflæði, hausverk, pirring, kvíða & þunglyndi, vöðvaverki, bólur, mataróþol, streitu, heilaþoku (erfitt með einbeitingu og skýra hugsun) svo dæmi séu nefnd. Sumir upplifa mörg einkenni í einu á meðan aðrir upplifa einungis eitt einkenni sem getur skert lífsgæðin. 

Þú þarft ekki að vera greind/ur með sjúkdóm til þess að hafa ástæðu til þess að taka heilsuna í gegn. Besta er að taka ábyrgð á eigin heilsu strax til þess að fyrirbyggja þá lífsstílstengdu sjúkdóma sem hafa aldrei verið algengari í nútímasamfélagi. Svo sem sykursýki 2, hjarta- & æðasjúkdóm, skjaldkirtilsójafnvægi, gigt og þess háttar.

Heilsan bíður ekki - hún er besta fjárfestingin sem við getum nokkurn tímann gert!

SKRÁNING

Netnámskeiðið hefst 17. mars 2024.

Djúphreinsun Holistic kostar 31.287 kr á mánuði í 3 mánuði. Einnig er hægt að kaupa stakan einkatíma hjá mér fyrir auka 15.000 kr. ef þú vilt enn meiri stuðning. 

Í fyrirlestrunum mun ég benda þér á þau bætiefni sem þú tekur yfir hreinsunina. Kostnaður fyrir bætiefni er um 32.000 kr aukalega (þetta miðast við heildsöluverð sem er einungis fyrir þátttakendur). 

Ég sé um að panta bætiefni fyrir þátttakendur þar sem ég fæ þau á betra verði.
Skráningarform er neðar á síðu.

Djúphreinsun
netnámskeið

31.287 kr

Á mánuði / 3 mánuðir

Innifalið:

  • Hollar uppskriftir á rafrænu formi.

  • Prentuð verkefnabók.

  • Holistic Dagbók.

  • Listi yfir heilsuvörur og mat sem Holistic mælir með.

  • Afsláttur af ýmsum heilsuvörum og bætiefnum.

  • Margir klukkutímar af fræðslu í formi myndefnis, texta og glærusýninga. Ný fræðsla birtist í hverri viku í 12 vikur.

  • Ítarleg fræðsla um hollt mataræði, heilbrigðan lífsstíl, öndun & taugakerfið, heilbrigt hugarfar, velgengni og árangur, ávana og markmið, hugleiðslu og margt fl.

  • Lokaður umræðurhópur á fb.

HÆ! ANNA LIND HEITI ÉG

Ég verð þinn leiðbeinandi í djúphreinsun Holistic.

Sjálf glímdi ég við candida ofvöxt í mörg ár, ásamt ýmsum heilsufarsvandamálum, H. Pylori sýkingu, magaverkjum, bakflæði, blóðsykursójafnvægi og margt feira. 

Ég er hér til þess að aðsoða þig að taka ábyrgð á eigin heilsu líkt og ég hef sérhæft mig í.

Ég er menntuð í Functional Medicine eða hagnýtri lækningu frá The School of Applied Functional Medicine í Bandaríkjunum. Þessi fræði leggur áherslu á að finna rótarástæðu sjúkdóma eða vanlíðunar á náttúrulegan hátt, án lyfja. Einnig er ég heilsumarkþjálfi og tók nám í hreyfivísindum hjá CHEK Institute og nám í Holistic Lifestyle Coaching eða heildrænni lífsstílsþjálfun stig 2 hjá CHEK.

Ásamt því hef ég lokið námi í nuddi, einkaþjálfun og tveimur jógakennaranámum, bæði frá Tælandi og Íslandi.

Ég hef haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri. Ég blanda minni þekkingu saman til að veita þér sem bestu þjónustu og mögulegt er.

P1010978-scaled.jpg

EFTIRFARANDI FYRIRLESTRAR ERU INNIFALDIR Í
DJÚPHREINSUN HOLISTIC:

Fyrirlestrar um mataræði og heilsu

✓ Hvernig á ég að byrja að djúphreinsa líkama minn?
✓ Skipulagning - matseðill og undirbúningur
✓ Candida sveppasýking, sníkjudýr og aðrar sýkingar
✓ Hvað á að borða og hvernig á að versla inn fyrir vikuna
✓ Hvernig á að losna við sykurlöngun?
✓ Steita og taugakerfið
✓ Hámörkun næringarefna - hvernig getur þú nært líkama þinn
sem best og hámarkað lífsgæðin?
✓ Hvernig á að bæta meltinguna? Lekir þarmar, bakflæði, harðlífi,
verkir o.s.frv.
✓ Hvernig á að minnka bólgur í líkamanum?
✓ Gallblaðran og lifrin
✓ Mataræði eftir hreinsunina - hvað er hollt mataræði til langs tíma?
✓ Mataræði fyrir þinn líkama - miðað við þínar erfðir

Fyrirlestrar um hugarfar og andlega heilsu

✓ Sterk hugarfar er mikilvægt til þess að ná árangri
✓ Tilgangur og markmið
✓ Gildi
✓ Ávanar í átt að betra lífi
✓ 7 Lyklar velgengnis
✓ Lögmál alheimsins
✓ Endurforritun heilans - hvernig þú getur endurforritað heilann til þess að mynda nýja ávana og skapa lífið sem þú vilt
✓ Þú ert ekki fórnarlamb gena þinna
✓ Epigenetics (utangenaerfðir)
✓ Þínar hugsanir skapa þinn veruleika
✓ Þínar tilfinningar hafa bein áhrif á heilann
✓ Hvernig á að ná stjórn á tilfinningum
✓ Hugleiðsla & öndun 
✓ Kvíði og þunglyndi
✓ Hvernig get ég upplifað velgengni?

Super Health Food

HEILSAN BÍÐUR EKKI

Ekki bíða alltaf eftir rétta tímanum eða rétta tækifærinu til að bæta heilsuna. Hún er það dýrmætasta sem
við eigum! Bætt heilsa þýðir einfaldlega betri lífsgæði og meiri hamingja.

Í hverju felst Djúphreinsun Holistic?

JURTIR OG BÆTIEFNI

Á meðan hreinsuninni stendur tökum við inn 7 mismunandi tegundir af sterkum jurtum og bætiefnum til þess að drepa candida og sníkjudýr, hreinsa blóðið, styðja við hreinsun lifrarinnar, bæta meltinguna, auka jafnvægi þarmaflórunnar og margt fleira

BÆTT MATARÆÐI

Yfir þessa þrjá mánuði þá einblínum við á hreint mataræði. Ríkt af íslensku kjöti, fisk, sterkjulitlu grænmeti.

Við sniðgöngum sykur í öllu formi m.a. hvítan sykur, ávexti, djús, rótargrænmeti (gulrætur eru í lagi), hunang, bakkelsi & þess háttar. Forðumst áfengi, gervi sætuefni, mjólkurvörur (ghee er í lagi), kaffi, baunir og ákveðnar kornvörur. 

Innifalið í hreinsuninni er uppskriftarbók með öllu því sem er ráðlagt að borða.

HUGARFAR & LÍFSSTÍLL

Síðast en ekki síst þá hefur hugarfarið og lífsstíllinn okkar mikil áhrif á jafnvægi í líkamanum þar sem öll kerfi líkamans eru tengd. Mikilvægt er að bæta heilsuna á öllum sviðum til þess að hámarka árangur.

Námskeiðið inniheldur ákveðnar hugleiðslur sem stuðla að aukinni heilsu, öndunaræfingar til þess að endurstilla taugakerfið og ýmislegt til þess að efla hugarfarið og auka árangur í lífinu almennt.

SKRÁNING Í DJÚPHREINSUN

Næsti hópur byrjar 17. mars 2024.
Hægt er að horfa á fyrirlestrana á netinu þegar þér hentar yfir þetta
3ja mánaða tímabil.

Takk fyrir skráninguna. Ég hef samband fljótlega.

bottom of page