top of page

HEILSUMARKÞJÁLFUN

KOMDU LÍKAMANUM Í JAFNVÆGI Á NÁTTÚRULEGAN HÁTT OG ÖÐLASTU ORKURÍKARA LÍF 

OM.png

Lyfjalaus lækning

Notast er við heildræna nálgun að vellíðan, hollum lífsstíl og bættu mataræði. Ég hitti þig tvisvar sinnum í mánuði í klukkutíma í senn yfir 5 mánaða tímabil. Við finnum undirliggjandi ástæðu fyrir ójafnvægi í líkama þínum á náttúrulegan hátt, án lyfja. T.d. orsök veikinda, streitu, svefnleysis, orkuleysis, meltingarvandamála og fleira. Ég hjálpa þér að læra að hlusta á þinn líkama þar sem allar matar- og lífsstílsvenjur eru mismunandi fyrir hvern einstakling fyrir sig. Margt sem telst "hollt" hentar kannski ekki fyrir þinn líkama.

8a8a33bed81dc6fe6a0d22061bb57374.png

Innifalið

  • 10 viðtalstímar yfir 5 mánaða tímabil
  • 1 klst í senn aðra hverja viku
  • Mæling á blóðsykri ef þarf
  • Stuðningur í gegnum netið á milli tíma 
  • Matardagbók
  • Næringaríkar uppskriftir
black-calligraphic-lotus-blossom-yoga-sy

Vilt þú ...

  • Grennast eða þyngjast

  • Langvarandi breytingu, ekki skyndilausnir

  • Leiðbeiningar, stuðning og hvatningu 

  • Minnka bólgur í líkamanum

  • Auka orku og líða vel í eigin skinni

  • Minnka uppþembu, vindgang eða hægðatregðu

  • Bæta meltinguna

  • Sofa betur og vakna hress

  • Ná tökum á streitu og stressi

5 MÁNAÐA HEILSUMARKÞJÁLFUN 

Nýtt líf með heilsusamlegum lífsstíl

“Let food be thy medicine and medicine be thy food.”
― Hippocrates

EINKENNI OG VANLÍÐAN ERU EKKI EÐLILEG
Líkaminn er að gefa þér skilaboð um að eitthvað sé í ójafnvægi ...

Meltingin er oftar en ekki rót ýmissa sjúkdóma, til dæmis Parkinsons, lifrasjúkdóma, offitu, skjaldkirtilssjúkdóma, sjálfsónæmissjúkdóma líkt og gigtar, MS, sykursýkis 1 og fleiri. Til þess að vinna á þessum sjúkdómum þurfum við að skoða rótina en ekki einungis bæla niður einkennin. Þegar við lögum ekki rótarástæðu sjúkdóma þá náum við aldrei varanlegri vellíðan og endurheimt. Funtional Medicine aðferðafræðin sem ég vinn út frá snýst um að laga rótarástæðu sjúkdóma en ekki bara ráðast á einkennin. 
Ég er Functional Medicine sérfræðingur, heilsumarkþjálfi, heildrænn lífsstílsþjálfi, jógakennari, einkaþjálfari og hef lokið stigi 2 í hreyfivísindum. Ég aðstoða fólk við að ná góðri andlegri og líkamlegri heilsu og býð uppá persónulega ráðgjöf fyrir þá sem vilja öðlast heilbrigðan lífsstíl með hollu mataræði, streitustjórnun, öndun, hugarfars- og lífsstílsbreytingum og hreyfingu.
Ef þú ert orkulaus, þjáist af magavandamálum, sjúkdómum eða bólgum í líkamanum, vilt léttast, losna undan streitu eða einfaldlega líða betur í eigin líkama þá get ég aðstoðað þig! Þetta snýst ekki um skyndilausn heldur finnum við einstaklingsmiðaða lausn sem virkar fyrir þig til lengri tíma, með einu skrefi í einu.  
Heilsumarkþjálfunin fer fram aðra hverja viku, klukkutíma í senn, yfir 5 mánaða tímabil. Notast er við heildræna nálgun að vellíðan, hollum lífsstíl og bættu mataræði. Það hefur verið sýnt fram á það að 5 mánuðir er sá tími  sem þarf til þess að einstaklingurinn finni fyrir breytingum á líðan og líkama og nái að viðhalda góðum venjum og nýjum lífsstílsbreytingum.
ÞESSI ÞJÁLFUN ER FYRIR ÞIG EF ÞÚ ...
  • vilt grennast eða þyngjast
  • ert með meltingarvandamál, leaky gut, bakflæði, IBS, IBD ...
  • ert með vanvirkan eða óvirkan skjaldkirtil
  • ert með sjálfsónæmissjúkdóm, gigt, MS, sykursýki 1 eða álíka
  • ert komin/n með nóg af skyndilausnum og vilt langvarandi breytingu
  • vilt minnka bólgur í líkamanum
  • ert óviss hvað er best að borða fyrir þinn líkama
  • vilt auka orku og líða vel í eigin skinni
  • þarft leiðbeiningar, stuðning og hvatningu 
  • upplifir uppþembu, vindgang eða hægðatregðu
  • ert með bólur eða húðvandamál
  • borðar hollt en nærð ekki ákjósanlegri þyngd 
  • upplifir mikla fíkn, matarfíkn, áfengisfíkn eða annað slíkt
  • sefur ekki vel og vaknar þreytt/ur
  • upplifir stress og streitu
  • telur þig vera heilsusamlega/n en þú vilt bæta þig enn meira
  • skilur að mataræði og lífstíll spilar stórt hlutverk í þinni heilsu
  • læra að hlusta á þinn eigin líkama og vita hvaða matur hentar þér best
INNIFALIÐ Í 5 MÁNAÐA ÞJÁLFUN:
  • 10 Viðtalstímar yfir 5 mánaða tímabil
  • 1 klukkustund í senn aðra hverja viku
  • Matardagbók
  • Stuðningur gegnum netið eða í síma milli tíma 
  • Hollar og næringaríkar uppskriftir 
ER HEILSUMARKÞJÁLFUN FYRIR ÞIG?
Þú getur komið í stakan tíma sem kostar 16.000 kr þar sem við förum yfir þína heilsu og skoðum hvernig við getum unnið saman.
Ég er staðsett á Fiskislóð 49-51 (Í húsi Granda101). 
Skráðu þig í stakan viðtalstíma hér:

Thanks! Message sent.

P1011097.jpg

Um mig

Anna Lind Fells heiti ég og er eigandi fyrirtækisins Líkami og Heilsa ehf. Ég er menntuð í Functional Medicine eða hagnýtri lækningu frá The School of Applied Functional Medicine í Bandaríkjunum. Þessi fræði leggur áherslu á að finna rótarástæðu sjúkdóma eða vanlíðunar á náttúrulegan hátt, án lyfja. Einnig er ég heilsumarkþjálfi, næringar- og lífsstílsráðgjafi frá Institute for Integrative Nutrition Health Coach og aðstoða fólk við að ná góðri heilsu. Ég tók nám í hreyfivísindum hjá CHEK institue og stig 2 í Holistic lifestyle coaching eða heildrænni lífsstílsþjálfun.
Ásamt því hef ég lokið námi í einkaþjálfun og tveimur jógakennaranámum, bæði frá Tælandi og Íslandi.
 

Ég hef haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri heilsu og veiti heilsuráðgjöf á Granda101 (Fiskislóð 49-51). Ég held fyrirlestra, netnámskeið, býð uppá nudd, jóganámskeið, ásamt vellíðunar- & jóga retreati.

P1010978-scaled.jpg
bottom of page